Innskrá
Skip Navigation Links
Skip Navigation Links

Á næstunni

9.september
31 ára
afmæli Kromby
10.september
31 ára
afmæli kiddi
12.september kl. 20:00
Framtíðarvinir

Könnun mánaðarins

Hvaða nýja Hressleikagrein er hressust?







Sjá niðurstöður

Loading
15. janúar 2010
Vetrarferðin nálgast
Eins og áður hefur komið fram verður farið í hina
stórskemmtilegu vetrarferð hress.org um næstu helgi. Þetta er í fimmta sinn sem
þessi geysivinsæla ferð er farin og er búist við metþátttöku og miklu stuði. Að
venju grillum við saman á laugardeginum, förum nokkrar ferðir í pottinn sem
þarf væntanlega ekki að tæma snjóinn úr í þetta skiptið. Ef vel viðrar verður
hægt að komast eitthvað út á vatnið og þau sem vilja geta mætt með
veiðistöngina (öðrum er bent á að versla í bónus eða álíka). Skemmtinefnd hefur
hafið störf og mun væntanlega trylla lýðinn, handboltinn verður á sínum stað og
aldrei að vita nema fótbolti sýni sig líka. Fólki er bent á að skrá sig á
spjallinu og borga þátttökugjald, sem er kr 2500 en 500 kr afsláttur er veittur
þeim sem greiddu í hresssjóðinn í fyrra og aðrar 500 kr dragast frá gjaldi
þeirra sem borgað hafa í hresssjóðinn 2010. Fyrir þau sem eru í vafa hvort þau
ætla að mæta, þá mæli ég með að þið lítið á þetta, þetta, þetta og þetta líka. Sjáumst hress



hronnsla

Hress.Org
hress hjá hress.org
Copyright © 2010 Guðjón Karl Arnarson